lgn.is - Niðurstöður verðendurskoðunar 2009
Hafðu samband

LYFJASTOFNUN

Vínlandsleið 14, 113 Reykjavík

Sími 520 2100

Netfang: [email protected]


 

 

Niðurstöður verðendurskoðunar 2009
02.09.2009 - Niðurstöður verðendurskoðunar 2009

Lyfjagreiðslunefnd hefur lokið við heildarverðendurskoðun á lyfseðilskyldum lyfjum sem byggir á meðalverði í fjórum viðmiðunarlöndunum  þ.e. Danmörk, Finnland, Noregur og Svíþjóð.

Verðbreytingar í kjölfar verðendurskoðunar tóku gildi 1. júní, 1. júlí og 1. september s.l..

Gera má ráð fyrir að kostnaðarlækkun apótekslyfja vegna endurskoðunar geti numið 355 m.kr. á þessu ári og 410 m.kr. á árinu 2010. Ætla má að sparnaður Sjúkratrygginga Íslands geti numið 266 m. kr. og sparnaður sjúklinga geti numið 90 m.kr. fyrir árið 2009. Fyrir 2010 er sparnaður SÍ líklega 307 m.kr. og sjúklinga 103 m.kr. Þessar tölur eru á smásöluverði með vsk.

Varðandi sjúkrahúslyfin er erfiðar að spá fyrir um raunverulegan sparnað vegna mögulegra útboða. Hins vegar er ljóst að hann er verulegur eða allt að 143 m.kr. á árinu 2009 og líklega svipaður á árinu 2010. Þessar tölur eru reiknaðar á heildsöluverði með vsk.

Vegna aðstæðna í samfélaginu er mikilvægt að leitað sé allra leiða til að ná fram hagræðingu og sparnaði öllum til heilla. Lyfjagreiðslunefnd vill þakka gott samstarf við lyfjafyrirtækin í landinu til að ná fram þessum sparnaði bæði fyrir ríki og sjúklinga.

Lyfjagreiðslunefnd hefur ákveðið að næsta heildarverðendurskoðun hjá nefndinni fari fram í upphafi árs 2011. Til grundvallar þeirri heildarverðendurskoðun liggja þá sölutölur fyrir árið 2010 og á verði í desember 2010.

Áður en til heildarverðendurskoðunar kemur geta hagsmunaaðilar komið að athugasemdum um fyrirhugaða framkvæmd hennar telji þeir það nauðsynlegt í samræmi við 13. gr. stjórnsýslulaga.

Mikilvægt er að allar athugasemdir berist sem fyrst eða eigi síðar en 30. nóvember 2010 svo hægt sé að bregðast við þeim

Með þessu er nefndin að uppfylla skyldur sem á hana eru lagðar í 46. gr. Lyfjalaga þar sem kemur fram að Lyfjagreiðslunefnd skuli endurmeta forsendur lyfjaverðs hér á landi, samanborið við sömu lyf á Evrópska efnahagssvæðinu, reglulega og eigi síðar en á tveggja ára fresti og gera tillögur um breytingar gefi matið tilefni til þess.

Nánari upplýsingar veitir Rúna Hauksdóttir, formaður Lyfjagreiðslunefndar, beinn sími 553-9050