Lyfjagreiðslunefnd hefur samþykkt leyfisskyldu fyrir Fasenra (benralizumab) við eftirfarandi ábendingu:
Fasenra er ætlað sem viðbótarviðhaldsmeðferð hjá fullorðnum sjúklingum með alvarlegan rauðkyrningaastma sem ekki hefur náðst nægjanleg stjórn á þrátt yfir háskammtameðferð með barksterum til innöndunar ásamt langverkandi beta-örvum.
Lyfin Fasenra (benralizumab), Cinqaero (reslizumab) og Nucala (mepolizumab) eru lögð að jöfnu og það lyf sem hefur lægsta meðferðarkostnað er að öllu jöfnu fyrsta meðferðarval.
Klínískar leiðbeiningar fyrir Fasenra (benralizumab) KL
Listi yfir öll leyfisskyld lyf á excel formi. Listi excel.
Listi yfir öll leyfisskyld lyf á PDF formi. Listi PDF. |