Lyfjagreiðslunefnd hefur, skv. 43. gr. lyfjalaga nr. 93/1994 með síðari breytingum og með vísan í tilkynningu á heimasíðu nefndarinnar þann 30. júní s.l., tekið til endurskoðunar greiðsluþátttöku lyfja í ATC flokknum B01A, sem eru segavarnarlyf.
Endurskoðunin fór fram í nóvember s.l. og var allur ATC flokkurinn B01A tekinn til endurskoðunar. Við endurskoðunina var stuðst við söluáætlanir umboðsaðila og áætlanir um fjölda sjúklinga. Jafnframt var tekið tillit til verðs á samanburðarlyfjum og verðs lyfjanna í samanburðarlöndunum.
Niðurstaða endurskoðunarinnar var tekin til umfjöllunar og afgreiðslu á 219. fundi nefndarinnar þann 1. desember s.l.
Á þeim fundi var ákveðið að engar breytingar yrðu gerðar á greiðsluþátttöku lyfja, í lyfjaverðskrá, sem eru í þessum ATC flokki. |