Tímabundin undanþága fyrir 064733 Vaxigrip, inflúensubóluefni.
Til hagsbóta fyrir sjúklinga vegna inflúensu bólusetningar hefur lyfjagreiðslunefnd í samráði við Sóttvarnarlækni, veitt leyfi til sölu á 064733 Vaxigrip.
Fyrirhugað var að hefja bólusetningu þann 1. október, en þar sem birgðir lyfsins eru komnar til landsins, lyfið er í lyfjaverðskrá en á hærra verði, er gefin út heimild til sölu á neðangreindu verði.
Innkaupsverð apóteka er 778 kr. og hámarkssmásöluverð er 2.154 kr.
Heimildin gildir út september 2014. |