lgn.is - 30.09.2010 Verðkönnun september 2010
Hafðu samband

LYFJASTOFNUN

Vínlandsleið 14, 113 Reykjavík

Sími 520 2100

Netfang: [email protected]


 

 

30.09.2010 Verðkönnun september 2010
30.09.2010 - 30.09.2010 Verðkönnun september 2010

Lyfjagreiðslunefnd hefur gert verðsamanburð á 40 veltuhæstu pakkningunum sem Sjúkratryggingar Íslands niðurgreiddu fyrir landsmenn árið 2009. Verðsamanburðurinn er gerður á lyfjaverðskrám september 2010  viðkomandi norðurlanda, bæði á heildsöluverði og smásöluverði.

Sjá nánar hér. Verðkönnun.

Einnig hefur nefndin útbúið línurit úr verðkörfum.

Línuritinu er ætlað að sýna í stórum dráttum muninn á milli viðmiðunarlanda og Íslands í verði.

Sjá nánar hér. Verðkörfur - línurit.

Verðkarfa SSV sýnir hvað 36 lyf kosta í apóteki í hverju landi fyrir sig.

Hæsta verð er í Danmörku 904.050 krónur, lægsta verð í Noregi 766.870

Verðkarfa HSV sýnir heildsöluverð í hverju landi fyrir sig.

Hæsta verð er í Danmörku 656.097 krónur, lægsta verð í Finnlandi 519.847

Mismunalína sýnir hvað apótek fá í sinn hlut með vask.

Hafa ber í huga að samanburðurinn endurspeglar lyfjanotkun á Íslandi en ekki hvaða lyf eru notuð mest í viðmiðunarlöndum Íslands. Þau eru Danmörk, Finnland, Noregur, Svíþjóð.

Nánari upplýsingar veitir formaður Lyfjagreiðslunefndar, Rúna Hauksdóttir, [email protected], beinn sími 553-9050