Frá og með 1. september 2019 mun virðisaukaskattur á getnaðarvarnir vera 11 % í stað 24 % með vísan í lög nr. 67/2019 um breytingu á lögum um virðisaukaskatt, nr. 50/1988, með síðari breytingum (tíðavörur og getnaðarvarnir) og samþykkt voru á Alþingi þann 11. júní 2019.
Getnaðarvarnalyf í ATC flokkum G02BA, G02BB, G03AA, G03AB, G03AC, G03AD og G03HB munu því færast úr 24 % virðisaukaskatti í 11 % virðisaukaskatt frá og með 1. september nk.
Í lyfjaverðskrá kemur ný skilgreining í dálkinum „Álagningarflokkur“ sem heitir „lyfalm11“ fyrir ávísunarskyld mannalyf og „lyflau11“ fyrir getnaðarvarnalyf í lausasölu.
Sjá meðfylgjandi excel skjal með lyfjum sem eru í þessum ATC-flokkum.
Excel skjal. |