lgn.is - 30.06.-2014 - Endurskoðun á greiðsluþátttöku lyfja í ATC flokknum B01A
Hafðu samband

LYFJASTOFNUN

Vínlandsleið 14, 113 Reykjavík

Sími 520 2100

Netfang: [email protected]


 

 

30.06.-2014 - Endurskoðun á greiðsluþátttöku lyfja í ATC flokknum B01A
30.06.2014 - 30.06.-2014 - Endurskoðun á greiðsluþátttöku lyfja í ATC flokknum B01A

Lyfjagreiðslunefnd hefur, skv. 43. gr. lyfjalaga nr. 93/1994 með síðari breytingum, ákveðið að taka til endurskoðunar greiðsluþátttöku lyfja í ATC flokknum B01A, sem eru segavarnarlyf.

Fyrirhugað er að  endurskoðunin fari fram í nóvember/desember 2014.

Við endurskoðunina verður allur ATC flokkurinn B01A tekin til endurskoðunar og mun nefndin styðjast við söluáætlanir umboðsaðila og áætlanir um fjölda sjúklinga. Jafnframt verður tekið tillit til verðs á samanburðarlyfjum og verðs lyfjanna í samanburðarlöndunum.